Nú er komið að lokum sýningarinnar Margslunginn einfaldleiki í Safnahúsinu á Húsavík. Á sýningunni gefur að líta úrval verka listamannanna Tryggva Ólafssonar og Thors Vilhjálmssonar, en báðir listamenn hefðu átt stór afmæli á síðasta ári, Thor 100 ára og Tryggvi 85 ára. Sýningin tengir saman list þessara vina sem báðir áttu sterkar taugar til Húsavíkur.
Sýning Tryggva og Thors er opin frá klukkan 11:00 til 17.00 í dag. Á laugardag opnar svo sýning á ljósmyndum Christopher Taylor í myndlistarsalnum.

> Sjá einnig: Myndir frá opnun sýningarinnar Margslunginn einfaldleiki í Safnahúsinu

