Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í gær

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, Silver Endeavour, kom til hafnar á Húsavík í hádeginu í gær. Skipið ber 260 farþega og 209 í áhöfn og er gert út af mónakóska fyrirtækinu Silversea Cruises. Von er á öðru skipi í vikunni þegar Fridtjof Nansen leggst að höfn á laugardag.

Á meðfylgjandi mynd sem Gunnar Jóhansson tók má sjá Hálmar Boga Hafliðason fráfarandi forseta sveitarstjórnar leiðsegja hópi ferðafólks úr skipinu á mánudag.