Norðurþing biðlar til einstaklings að sækja ruslið sitt og koma því í viðeigandi förgun

Norðurþing hefur sent frá sér ítrekun þess efnis að losun sorps á brennustæði sé með öllu óheimil. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef sveitarfélagsins í dag. Á síðustu dögum hefur einhver losað þar rusl, þar sem árviss áramótabrenna sveitarfélagsins fer fram á Húsavík.

Í tilkynningunni er bent á að brennusvæði Norðurþings sé ekki opið sorpsvæði fyrir íbúa og eru íbúar hvattir til að nýta viðeigandi sorphirðu og endurvinnslustöðvar fyrir úrgang.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að sá eða þeir sem nýlega hafi hent efni á brennustæðið á Húsavík án leyfis séu beðnir um að fjarlægja það hið fyrsta.