Flokkarnir fjórir halda áfram meirihlutaviðræðum í dag

Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknar og Óskalista ganga vel að sögn Helenu Eydísar Ingólfsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins.

„Við höfum verið að taka einn fund á dag. Það eru allir í vinnu svo við getum ekki fundað jafn stíft og þau í borginni,“ sagði Helena í samtali við Húsavík.com í gærkvöldi.

Hún segir viðræðurnar komnar vel á veg og að stærsti hluti skipulagsvinnunnar sé þegar að baki.

„Við erum komin vel á veg og gegnum erfiðasta hluta leiðarinnar, sem er að skipa í hlutverk, nefndir og ráð, og erum að vinna í málefnunum núna og í framhaldinu. Enn sem komið er er góður samhljómur á milli framboðanna.“

Helena sagði ráðgert að halda fundum áfram í dag.