Óskalistanum hefur verið boðið til formlegra meirihlutaviðræðna. Þetta staðfesti Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Húsavík.com í gærkvöldi.
Viðræður Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Óskalistans hefjast í dag, en Húsavík.com hafði heimildir fyrir því að fulltrúar þriggja fyrrnefndu framboðanna hefðu fundað á sunnudagskvöld.
„Það er búið að bjóða okkur í samtal á morgun,“ sagði Ómar Gunnarsson, oddviti Óskalistans, þegar Húsavík.com náði tali af honum í gærkvöldi, en hann var þá að hringja út í bakland sitt til að ræða boðið. Ómar sagði listann ekki koma að borðinu með neinar ófrávíkjanlegar kröfur. Þau hefðu boðið sig fram til að hafa áhrif og vilji þeirra væri því að vera í meirihluta.
„Ég er búin að fara yfir málefnaskrá hinna framboðanna og sé í stóru myndinni ekki sérstök ágreiningsmál sem gætu komið upp,“ segir Helena Eydís. „Það verða mál þar sem við höfum ólíka sýn, sem segir fyrst og fremst að þar séu mál sem þarfnast endurskoðunar, frekar en að það verði mál sem ekki verði hægt að leysa. Það hefur verið vinnufriður á síðasta kjörtímabili, gott samstarf milli fulltrúa minnihluta og meirihluta um öll helstu mál,“ segir Helena og kveðst vona að svo verði áfram.
Verði þetta meirihlutaformið að veruleika verða fulltrúar í meirihluta sjö talsins, en tveir fulltrúar, Aldey Unnar Traustadóttir frá Velferð og Rúnar Traustason frá M-lista Samfélagsins, yrðu þá í minnihluta.

