Í gær var greint frá því að Íslandsbanki muni fækka stöðugildum um samtals 50 á árinu, þar af rúmlega 20 strax í dag, í kjölfar skipulagsbreytinga innan bankans.
Í samtali við Húsavík.com sagði Helga Dögg Aðalsteinsdóttur, útibússtjóri Íslandsbanki á Húsavík, að breytingarnar muni ekki hafa áhrif á starfsemi útibúsins hér í bæ.
„Engin áhrif hér. Mest er þetta starfsfólk sem er að hætta vegna aldurs og ekki ráðið inn í þeirra stað,“ segir Helga Dögg.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að breytingarnar séu liður í því að einfalda stjórnskipulag, stytta boðleiðir og auka skilvirkni í rekstri, meðal annars með aukinni stafrænni þróun og nýtingu gervigreindar. Bankinn gerir ráð fyrir að árlegur launakostnaður dragist saman um um einn milljarð króna þegar breytingarnar hafa komið að fullu til framkvæmda.

