Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka við Húsavík, hefur verið kjörinn í stjórn Rarik á aðalfundi félagsins sem fór fram á Akureyri á mánudag.
Á aðalfundinum var jafnframt kjörin í stjórn Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Drift EA á Akureyri. Áfram sitja í stjórn Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður, ásamt Sigrúnu Hallgrímsdóttur og Sverri Jan Norðfjörð.
Í tilkynningu frá Rarik kemur fram að rekstur félagsins standi á traustum grunni og að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við umfangsmikil verkefni á næstu árum. Hagnaður samstæðunnar árið 2025 nam 3,6 milljörðum króna og rekstrarhagnaður (EBITDA) 10,3 milljörðum króna. Tekjur jukust um 18% milli ára og námu 28,3 milljörðum króna.

