Björgunarsveitir frá Húsavík, Raufarhöfn og Kópaskeri voru kallaðar út á efsta forgang síðdegis í gær þegar bátur lenti í vandræðum í höfninni á Kópaskeri og fór að sökkva eftir að hafa tekið inn á sig sjó. Vísir.is greindi fyrst frá málinu í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Jón Þóri Víglundssyni, upplýsingafulltrúa hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, voru tveir menn um borð í bátnum þegar atvikið varð. Þeir voru hætt komnir um tíma en vel gekk að bjarga þeim í land með aðstoð sæþotu (jetski) og eru sagðir heilir á húfi.
Björgunarskipið Gunnbjörg frá Raufarhöfn, björgunarbáturinn Villi Páls frá Húsavík og björgunarsveitin Núpar á Kópaskeri voru kölluð út rétt upp úr klukkan 17 þegar tilkynning barst um atvikið.
Sjúkrabílar voru einnig kallaðir út, en þegar ljóst varð að mönnunum hafði verið bjargað heilu og höldnu voru þeir afturkallaðir.
Loftmynd: Ottó Gunnarsson

