Gentle Giants og GPG bjóða bæjarbúum á útgáfutónleika Ágústs í Húsavíkurkirkju

Það verður sannkölluð tónlistarveisla í Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 7. maí þegar Húsvíkingurinn Ágúst Þór Bryjarsson heldur útgáfutónleika á heimavelli og flytur sína fyrstu plötu, Hjartað á milljón, ásamt nokkrum vel völdum lögum. Aðgangur verður ókeypis en það eru fyrirtækin Gentle Giants og GPG sem bjóða bæjarbúum á tónleikana.

Mikið hefur verið að gera hjá Ágústi síðustu vikur og sumarið stefnir í að verða annasamt. Nýverið var tilkynnt að hann muni stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í sumar, sem er stór áfangi á hans ferli. Í samtali við Húsavík.com segir Ágúst að tilfinningin fyrir útgáfunni og tónleikunum sé einstök.
„Tilfinningin er frábær. Það er stór draumur að rætast hjá mér að ég sé að gefa út mína fyrstu plötu, og að fá að halda útgáfutónleika heima er bara smá óraunverulegt.“

> Sjá einnig: ÁGÚST: „Ég var ekki með neitt fast í hendi, nema trúna á tónlistina“

Hann segir stuðninginn frá GPG og Gentle Giants ómetanlegan. „Ómetanlegt að fá þessi tvö fyrirtæki mér í lið og gera mér kleift að hafa frítt á tónleikana. Ég hlakka mikið til og vona að ég sjái sem flesta.“

Fyrsta plata Ágústs, Hjartað á milljón, kom út sumardaginn fyrsta, 23. apríl, og inniheldur ellefu lög. Viðtökurnar hafa verið afar góðar. „Mjög skemmtilegt að sjá hvað margir hafa góða hluti að segja um þessa fyrstu plötu mína svo það er bara mjög dýrmætt að sjá og heyra svona góð viðbrögð.“

> Sjá einnig: Ágúst stýrir brekkusöng á Þjóðhátíð í ár