Gentle Giants: „Telur stjórn hafnasjóðs sig vita betur en Landsréttur og Hæstiréttur?“

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings hafnaði á fundi sínum í gær kröfum þriggja hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda að samanlagðri upphæð rúmlega 128 milljónum króna. Krafa Húsavík Adventures nemur tæplega 9,7 milljónum króna, krafa Norðursiglingar rúmum 90.6 milljónum og Gentle Giants tæpum 27.9 milljóum, en hún er vegna tímabilsins 2023 til 2025.

Mikill hiti er í málinu, sérstaklgea í ljósi þess að Gentle Giants hafði í fyrra betur í dómsmáli gegn Hafnasjóði Norðurþings, en Landsréttur dæmdi Gentle Giants í vil og Hæstiréttur hafnaði í framhaldi ósk Norðurþings um að taka málið til efnislegrar meðferðar.

„Þeir telja sig geta farið gegn dómstólum, það er ofar mínum skilningi. Telur stjórn hafasjóðs sig vita betur en Landsréttur og Hæstiréttur?“ sagði Stefán Guðmundsson framkvæmdastjóri Gentle Giants þegar Húsavík.com ræddi við hann í morgun.

Hann segir jafnframt að sér þyki undarlegt hvernig málum sé forgangsraðað hjá sveitarfélaginu. „Mér finnst þetta skrítin forgangsröðun, þegar liggur á borðinu að kjörnir fulltrúar ætla að draga lappirnar í lausn á mun brýnna máli, sem er frágangur veggjamálsins.“ Fyrirtæki Stefáns fagnar 25 ára afmæli sínu nú í sumar.

Spurður um hvort sveitarstjórn sé stætt á að samþykkja bókun Hafnasjóðs Norðurþings í ljósi undangengins dóms um sömu gjöld sagði Hjálmar Bogi Hafliðason: „Það hlýtur að vera vilji þeirra sem eru að stunda þessa atvinnustarfsemi að eiga einhverja kostnaðarþátttöku í allri uppbyggingunni sem henni fylgir,“  en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið og benti á stjórn Hafnasjóðs. Fundargerðin kemur til staðfestingar sveitarstjórnar á fimmtudag.

Formaður hafnarstjórnar vill ná samningum á fimmtudag

„Við erum að fara að funda á fimmtudag með fyrirtækjunum til að reyna að ná samningum um þessar kröfur og gjöld fyrir áframhaldandi notkun á höfnum Norðurþings,“ segir Eiður Pétursson, formaður stjórnar Hafnasjóðs Norðurþings.

Að hans sögn snýst ágreiningurinn ekki um það hvort farþegagjöld séu heimil, heldur hvernig þau hafi verið innheimt. „Það er skýrt í dómnum að farþegagjöld eru ekki ólögleg, en við féllum á framkvæmdinni og að sýna með skýrum hætti kostnað á móti þessum gjöldum, sem sannarlega var til staðar.“ Eiður bendir á að slík gjöld séu víða innheimt.

Landsréttur dæmdi eins og áður segir Gentle Giants í vil í október á síðasta ári. „Ég velti fyrir mér hvort þau telji sig hafin yfir landslög. Hæstiréttur sá ekki ástæðu til að hreyfa við niðurstöðunni en stjórn Hafnasjóðs Norðurþings virðist ætla að gera það,“ segir Stefán Guðmundsson.