Útför í Flatey í fyrsta sinn í sjö áratugi

Útför var gerð frá Flateyjarkirkju og greftrun í Flateyjarkirkjugarði um helgina, en þetta er í fyrsta sinn í 69 ár sem grafið er í kirkjugarðinum í Flatey á Skjálfanda. Byggð laggðist af í Flatey árið 1967 en síðasta útför í eynni fór fram tæpum tíu árum fyrr, í nóvember 1957, eða þar til nú.  Það var amma blaðamanns, Emilía Sigurjónsdóttir, sem var lögð til hinstu hvílu um helgina.

Siglt var með kistuna og útfarargesti frá Húsavík út í Flatey um borð í Sylvíu frá Gentle Giants. Prestur var sr. Þorgrímur Daníelsson. Aðstandendur þakka honum og Stefáni Guðmundssyni og starfsfólki hans hjá Gentle Giants fyrir eintaklega fallega umgjörð um útförina.

Kistunni lyft úr Sylvíu og upp á gömlu steinbryggjuna í Flatey.
Sr. Þorgrímur Daníelsson stýrir útförinni í Flateyjarkirkju.