Emilía Sigurjónsdóttir, fyrrverandi bókari hjá Húsavíkurbæ, lést í nótt á Sjúkrahúsinu á Húsavík á 99. aldursári.
Emilía, sem ætíð var kölluð Milla, fæddist í Flatey á Skjálfanda árið 1927 og flutti ásamt fjölskyldu sinni til Húsavíkur árið 1944. Hún starfaði fyrst við símstöðina á Húsavík og hjá Hótel Húsavík, áður en hún hóf störf hjá Húsavíkurbæ þar sem hún vann um áratuga skeið, allt til ársins 1994. Emilía var elsta kona Húsavíkur er hún lést og hefði orðið 99 ára þann 2. ágúst næstkomandi.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigurjón Jónasson, verslunarmaður og útvegsbóndi úr Flatey, og Jakobína Pálsdóttir frá Brettingsstöðum á Flateyjardal.
Milla var síðust eftirlifandi úr níu systkina hópi. Systkini hennar voru Jónas, fæddur 1918, Svavar, fæddur 1920, Sigurbjörg, fædd 1921, Guðmundur, fæddur 1923, Haukur, fæddur 1924, Páll, fæddur 1926, Eva, fædd 1929, og Agnar, fæddur 1934.
Árið 1953 eignaðist Milla son sinn Örlyg Hnefil, lögmann á Húsavík. Faðir hans var Jón Hnefill Aðalsteinsson, prófessor í þjóðfræði, frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal. Tengdadóttir Emilíu er Valgerður Gunnarsdóttir fyrrum skólameistari og alþingismaður og barnabörnin eru Emilía Ásta, Örlygur Hnefill og Gunnar Hnefill. Langömmubörn Millu eru átta talsins.

