Unbroken deildin: Inga Björg valin efnilegust og Taylor og Tamara í draumaliðinu

Inga Björg Brynjúlfsdóttir, leikmaður blakdeildar Völsungs, hefur verið valin efnilegasti leikmaður í Unbroken deildar kvenna þessa leiktíðina. Blaksambands Íslands kynnti í liðinni viku draumalið deildarinnar og þá einstaklinga sem sköruðu framúr.

Inga Björg hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Völsungsliðinu í vetur. „Hún hefur staðið sig frábærlega í vetur og er vel að þessu komin,“ segir móðir hennar, Helga Björg Pálmadóttir.

Tvær Völsungsstúlkur voru jafnframt valdar í draumalið deildarinnar, þær Taylor Nicole Horsfall og Tamara Beerová. Taylor gegnir lykilhlutverki hjá liðinu, bæði sem þjálfari og fyrirliði, og hefur átt stóran þátt í góðu gengi liðsins í vetur. Þá var Taylor einnig stigahæst í uppgjöf í deildinni. Juan Manuel Balnquer hjá karlaliðinu var stigahæstur í sókn.