Kynna könnun á stöðu verkafólks í Þingeyjarsveit og Norðurþingi á fundi á fimmtudag

Framsýn hefur boðað til fundar í vikunni þar sem farið verður yfir niðurstöður könnunar á stöðu verkafólks í Norðurþingi og Þingeyjarsveit.

Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um stöðu verkafólks í Norðurþingi og Þingeyjarsveit, sem unnin var af Vörðu. Um er að ræða sérvinnslu á svörum félagsmanna Framsýnar sem borin eru saman við stöðu launafólks á landsvísu. Að sögn Aðalsteins Baldurssonar, formanns Framsýnar, þótti Framsýn mikilvægt að fá skýra greiningu á stöðu félagsfólks á svæðinu.

„Varða gerir mjög vandaðar kannanir um stöðu verkafólks og okkur þótti afar mikilvægt að fá skýra greiningu á stöðu okkar fólks hér á svæðinu,“ segir Aðalsteinn. Þá bætir hann við að með samanburði við landsniðurstöður fáist betri mynd af því hvar helstu áskoranir liggi.

Varða, rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, leggur árlega fyrir kannanir meðal félagsfólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB, og mun framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Kristín Heba Gísladóttir, kynna helstu niðurstöður á fundinum. Meðal þess sem fjallað verður um er staða verkafólks á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði, fjárhagsstaða og heilsufar félagsmanna Framsýnar.

Fundurinn fer fra fimmtudaginn 16. apríl klukkan 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna.