Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Norðurþing rann út á hádegi í gær og liggur nú fyrir hvaða framboð munu bjóða fram í kosningunum í vor.
Húsavík.com ræddi við Karl Hreiðarsson, formann yfirkjörstjórnar, sem staðfesti að alls sex listar hafi borist og að allir hafi þeir uppfyllt skilyrði kosningalaga. Listarnir voru samþykktir án athugasemda og eru þeir eftirfarandi:
- B-listi Framsóknarflokks
- D-listi Sjálfstæðisflokks
- M-listi Samfélagsins
- Ó-listi Óskalistans
- S-listi Samfylkingar
- V-listi Velferðar
Að sögn Karls verða listarnir auglýstir formlega á vef sveitarfélagsins eftir helgi.
Spurður hvernig stemningin hefði verið hjá oddvitum og umboðsmönnum þegar þeir skiluðu listum sínum sagði Karl að hún hefði verið með besta móti. „Lá virkilega vel á þeim, öll hress og úthvíld að sjá, það kom enginn hlaupandi rétt fyrir lokun,“ sagði Karl kampakátur.

