Á fimmtudaginn heldur GAFL – Félag um Þingeyskan byggingararf aðalfund sinn í Safnahúsinu á Húsavík. Félagið var stofnað haustið 2012 og verður því 14 ára á árinu.
„Við viljum vekja athygli á íslenskri byggingararfleifð og auka skilning á þeim verðmætum og þeirri sérstöðu sem í henni felst, með sérstaka áherslu á Þingeyjarsýslur,“ segir Snorri G. Sigurðsson, formaður félagsins, í samtali við Húsavík.com.
Að sögn Snorra getur hver sem er gengið í félagið gegn hóflegu félagsgjaldi og fylgst með starfseminni á Facebook-síðu þess þar sem birtar eru fundargerðir, upplýsingar um gömul hús og fréttir af verkefnum félagsins.

Kvíabekkur stærsta baráttumálið
Snorri segir að eitt stærsta og langlífasta verkefni félagsins hafi verið að þrýsta á varðveislu Kvíabekks á Húsavík.
„Félagið hefur lengi beitt sér fyrir því að auka skilning sveitarfélagsins á mikilvægi þess að byrja um og varðveita Kvíabekk. Norðurþing fékk fyrir mörgum árum tíu milljóna króna styrk sem nýttur var til að endurbyggja burstirnar tvær sem voru hrundar og gera við timburverk hússins. Síðan er eins og Kvíabekkur hafi gleymst,“ segir Snorri.
Árið 2019 skipaði Norðurþing samráðshóp um framtíð hússins þar sem Gafl átti tvo fulltrúa. Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir teiknaði tillögu að lítilli íbúð í húsinu og skilaði teikningum árið 2020.
„Þær liggja enn óhreyfðar. Það væri hægt að útbúa gestavinnustofu með íbúðaraðstöðu í öllu húsinu eða hluta þess, til dæmis hluta úr ári. Slík vinnustofa gæti staðið undir rekstri hússins að mestu leyti.“
Snorri segir að hugsa mætti sér aðkomu að verkefninu frá aðilum eins og Menningarmiðstöð Þingeyinga, Þekkingarnet Þingeyinga og Náttúrustofa Norðausturlands.
Sjónvarpsstöðin N4 gerði ítarlega umfjöllun um Kvíabekk árið 2017 eftir að ráðist var í endurbyggingu burstanna.
Reyndu að bjarga Helguskúr
Gafl hefur einnig látið til sín taka í fleiri málum. Félagið reyndi meðal annars að bjarga Helguskúr með umfjöllun í fjölmiðlum og með bréfi til Norðurþings þar sem bent var á mikilvægi skúrsins í sögu útgerðar á Húsavík.
Þá hafði félagið samband við nýja eigendur Læknishússins þegar ráðist var í umfangsmiklar endurbætur á húsinu.
„Til stóð að setja glugga sem hefðu algjörlega augnstungið húsið. Eigendurnir tóku vel í okkar sjónarmið og létu smíða glugga í gamla stílnum.“
Fyrirlestrar og ferðir
Í gegnum árin hefur Gafl staðið fyrir fjölmörgum fræðslufundum og fyrirlestrum í tengslum við aðalfundi sína.
Meðal þeirra sem hafa flutt erindi eru Hjörleifur Stefánsson og Jan Aksel Klitgaard, auk Svandísar Sverrisdóttur, Þórólfs Aðalsteinssonar, Aðalsteins Maríusonar, Sigurjóns Baldurs Hafsteinssonar, Atla Vigfússonar og Benedikts Björnssonar.
„Þetta hefur verið mjög fjölbreytt og fróðlegt, allt frá torfhúsum yfir í vegghleðslur og endurgerð gamalla húsa,“ segir Snorri.
Félagið hefur einnig staðið fyrir vor- og haustferðum þar sem félagsmenn hafa skoðað merk hús og minjar, meðal annars Þverárbæ, eyðinýbýli á Fljótsheiði og Héðinshöfða á Tjörnesi.
Jólakort með sögu
Ein skemmtilegasta hefð félagsins er útgáfa jólakorta.
„Við höfum frá upphafi sent félagsmönnum jólakort. Á hvert kort er valið áhugavert hús í Þingeyjarsýslu og fylgja upplýsingar um húsið.“
Snorri segir mikilvægt að félagið haldi áfram að minna á söguna og mikilvægi þess að varðveita það sem enn stendur.
„Það þarf stundum ekki nema litla ábendingu eða smá þrýsting til að hlutirnir fari í réttan farveg. Við viljum einfaldlega halda áfram að standa vörð um þennan dýrmæta arf.“


