Sitthvað um sundlaugar

Sundlaugar eru hluti grunnþjónustu sveitarfélaga sem styður við lýðheilsu, menntun, ferðaþjónustu, annað atvinnulíf og félagslega virkni og samveru.
Í Norðurþingi blasir þó við þróun sem bendir í gagnstæða átt: niðurskurður, skert þjónusta gagnvart einum mikilvægasta innvið sveitarfélagsins og skerðing á þjónustu við ferðamenn. Á Húsavík eru á ári hverju 260 þús. ferðamenn og 130 þús. í Ásbyrgi og nágrenni.
Við frambjóðendur X-M Lista Samfélagsins höfum kynnt okkur málið með heimsóknum í báðar sundlaugarnar, viðtölum við þá sem best til þekkja og síðan höfum skynjað upplifun og óskir íbúa, nemenda,atvinnulífs, ferðaþjónustunnar og ferðafólks.

Nemendur í Lundi sitja eftir

Sundlaugin í Lundi hefur verið lokuð almenningi frá 2023 og nemendum frá vori 2025. Afleiðingin er sú að nemendur þar hafa ekki aðgang að sundkennslu í sinni heimabyggð, þrátt fyrir að sund sé lögbundinn hluti af námi grunnskóla. Samkvæmt kunnugum er hægt að gangsetja laugina með stuttum fyrirvara. Við viljum því að tafarlaust verði brugðist við svo börn í Lundi fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á – í sínu nærumhverfi.

Skertur opnunartími á Húsavík

Meirihluti Norðurþings ákvað nýlega að skerða opnunartíma sundlaugarinnar á Húsavík. Þetta dregur úr aðgengi fyrir almenning, fjölskyldur og ferðamenn og minnkar aðsókn og tekjur. Við viljum strax lengja opnunartímann um eina klukkustund seinnipartinn – einföld aðgerð sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði íbúa, virkni og möguleika ferðafólks. Aðgerðin mun auka aðsókn og tekjur.

Heilsuefling og ferðaþjónusta fara saman

Framtakssamir einstaklingar og vinir sundlaugarinnar á Húsavík hafa mótmælt ítrekuðum niðurskurði til saunaklefa og hafið söfnun fyrir honum. Slík aðstaða eykur bæði aðdráttarafl laugarinnar og bætir heilsueflandi gildi hennar. Listi Samfélagsins mun beita sér fyrir að þetta verkefni verði að veruleika – við munum tryggja það.

Lausn sem borgar sig

Sundlaugar gegna lykilhlutverki í því að styrkja Norðurþing sem heilsueflandi samfélag. Reglulegar sundferðir, hreyfing, þjálfun, köld og heit böð og sauna bæta líkamlega og andlega líðan, auka félagslega virkni og félagstengsl og draga úr einmanaleika. Á sama tíma eru sundlaugar mikilvægur þáttur í vaxandi ferðaþjónustu á svæðinu. Bætt og fjölbreyttari aðstaða og rýmri opnunartími munu leiða til aukinnar aðsóknar – sem skilar sér beint í hærri tekjum.

Uppbygging í Lundi

Við viljum einnig setja á fót „spretthóp“ fagfólks og heimamanna í Öxarfirði og Kópaskeri til að kanna möguleika á sumar rekstri sundlaugar þar, þar til varanleg lausn kemst í framkvæmd, með endurbyggingu eða stærri framkvæmd.

Við erum klár til verka!

Ágúst Sigurður Óskarsson – Húsavík, skipar 2. sæti á X-M Lista Samfélagsins
Gunnar Björnsson – Öxarfirði, skipar 17. sæti á X-M Lista Samfélagsins

Sundlaug Húsavíkur, öll lífsins gæði.
Sundlaugin Lundi, lýðheilsu- og skólasvæði, sem er nú lokað.

About Ágúst Sigurður Óskarsson

View all posts by Ágúst Sigurður Óskarsson →