Lausnir sem skipta fjölskyldur máli

Undanfarið hefur efnahagsumhverfið á Íslandi þrengt verulega að fjárhag heimila. Það er veruleiki sem margar barnafjölskyldur finna fyrir á hverjum degi; með hækkandi útgjöldum, auknu álagi og þrengra svigrúmi til að samræma fjölskyldulíf og atvinnu. Þess vegna teljum við hjá B-lista Framsóknar að það sé ekki aðeins mikilvægt, heldur brýnt samfélagslegt verkefni að styðja enn betur við barnafjölskyldur.

Grunnur að námsgleði

Við viljum bregðast við með skýrum og raunhæfum aðgerðum. Ein þeirra er að bjóða upp á gjaldfrjálsa 36 stunda leikskólavist. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar hefst formleg menntun barna. Grunnur lagður að félagsfærni, sjálfstæði og námsgleði. Að tryggja jafnan aðgang að leikskóla án fjárhagslegra hindrana er því bæði réttlætismál og fjárfesting í framtíðinni. Ein helsta tekjulind sveitarfélaga er útsvar og með þessari aðgerð gerum við sveitarfélagið okkar að enn meira spennandi valkosti fyrir barnafjölskyldur og aukum samkeppnishæfni sveitarfélagsins.

Styðja nemendur og starfsfólk

Við erum reglulega stolt af því öfluga starfi sem unnið er í leikskólum Norðurþings. Þar starfar fagfólk sem sinnir börnum af alúð, þekkingu og mikilli ábyrgð. Oft við krefjandi aðstæður. Við hlustum á reynslu þeirra og vitum að álagið er raunverulegt. Þess vegna leggjum við áherslu á lausnir sem styðja ekki aðeins við fjölskyldur heldur einnig við starfsfólkið sjálft.

Sem hluta af heildstæðri nálgun viljum við einnig auka sveigjanleika í heimgreiðslum til foreldra barna allt að 18 mánaða aldri. Með slíkum úrræðum skapast meira jafnvægi, fjölskyldur fá aukið val um umönnun barna sinna á fyrstu mánuðunum, á sama tíma og leikskólar fá aukið svigrúm í daglegu skipulagi. Það getur létt á álagi, styrkt starfsaðstæður og stuðlað að betri gæðum í starfinu til lengri tíma.

Sterkari fjölskyldur – betra samfélag

Það er okkar trú að sterk samfélög byggist á sterkum fjölskyldum. Með markvissum aðgerðum viljum við skapa aðstæður þar sem börn fá að blómstra, foreldrar finna fyrir öryggi og starfsfólk í leikskólum nýtur þeirrar virðingar og stuðnings. Þegar við léttum undir með fjölskyldum í sveitarfélaginu styrkjum við grunnstoðir samfélagsins alls.

Eysteinn Heiðar Kristjánsson
Oddviti Framsóknarflokksins í Norðurþingi

About Eysteinn Heiðar Kristjánsson

View all posts by Eysteinn Heiðar Kristjánsson →