Húsvíkingurinn Ágúst Þór Brynjarsson tekur að sér enn eitt stóra hlutverkið í sumar þegar hann stýrir brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hann tekur þar við keflinu af Magnúsi Kjartani sem hefur leitt sönginn undanfarin ár.
Ágúst hefur verið áberandi á tónlistarsviðinu síðustu misseri, meðal annars eftir þátttöku í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2025. Hann segist afar stoltur af verkefninu og hlakkar til að taka þátt í þessari rótgrónu hefð.
„Ég hef alltaf verið með það hugarfar að það er enginn að fara hringja í mig að fyrra bragði. Því er ég duglegur að hringja, senda skilaboð, kynna mig og koma mér á framfæri,“ sagði Ágúst í samtali við fréttavefinn Vísi.is fyrr í dag.
Þjóðhátíð er einn stærsti viðburður sumarsins og verður spennandi að sjá Húsvíking leiða brekkusönginn í Herjólfsdal, að því er Húsavík.com kemst næst í fyrsta sinn.
Ljósmynd: Jóndís Inga Hinriksdóttir

