Vonskuveður gekk yfir Húsavík og land allt í gær. Lífið gekk þó sinn vana gang á Húsavík.
Víðir Svansson fór í sund eins og alla aðra daga. Fólk klæddi sig vel og fór út með hundana sína, beygði höfuðið undan vindinum og hélt áfram skref fyrir skref gegnum storminn. Nemendur Borgarhólsskóla settu upp leiksýningu.
Ég gekk um bæinn með myndavélina og stal nokkrum augnablikum úr vindinum.












