Vonskuveður um allt land í dag: Austan hríð og gul viðvörun á Húsavík

Vonskuveður gengur nú yfir allt landið, en Veðurstofa Íslands hefur gefið út bæði gular og appelsínugular veðurviðvaranir.

Á Norðurlandi eystra er spáð austan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður.

Appelsínugul viðvörun er í gildi á öllum suðurhelmingi landsins og ná viðvaranir yfir land allt fram eftir degi. Gert er ráð fyrir að síðustu viðvaranir falli úr gildi á norðaustanverðu landinu í nótt.

Talsverðar raskanir eru á samgöngum. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og Icelandair aflýsti öllu millilandaflugi eftir klukkan 15 í dag. Þá hefur Strætó fellt niður ferðir á nokkrum leiðum og varað er við frekari truflunum.

Fjöldi vega er á óvissustigi og gæti lokast með skömmum fyrirvara. Nú þegar hefur verið lokað fyrir umferð um Holtavörðuheiði, Hellisheiði og Þrengsli, auk þess sem Hringvegurinn er lokaður á kafla frá Markarfljóti að Öræfasveit.

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út víða um land vegna fastra bíla og er fólk eindregið hvatt til að fara ekki af stað nema brýna nauðsyn beri til. Tilkynnt hefur verið um umferðaróhöpp í veðurofsanum, þar á meðal þar sem bíll fauk út af nærri Borgarnesi og rúta valt á hliðina við Kjalarnes.