Beint frá Tunglinu: Líktu yfirborði tunglsins við landslag í Þingeyjarsýslum

Geimfararnir Victor Glover og Christina Koch ræddu yfirborð tunglsins þegar Artemis II geimfarið flaug þar framhjá í nótt. Lýstu þau landslaginu með hætti sem ætti að hljóma kunnuglega fyrir Þingeyinga, en þau sögðu tunglið minna helst á það sem þau höfðu séð við æfingar sínar hér.

Victor Glover lýsti miklum andstæðum í landslaginu, sérstaklega í og við Hertzsprung-gíginn. Sagði hann miðju gígsins vera ótrúlega slétta, líkt og vel troðinn malarveg, á meðan eldri jaðarsvæði væru hrjúfari og óreglulegri. Smærri gígar innan stærri gígsins hefðu einnig skarpar og greinilegar brúnir vegna sléttleika yfirborðsins.

Þá benti hann á að svæðið í kringum Hertzsprung væri dekkra en önnur svæði tunglsins og með allt aðra áferð. Christina Koch tók undir það og lýsti yfirborðinu sem eins konar frosnu, bylgjóttu vatni, eins og þegar vindur gárar vatnsflöt, en sem frosið. Hún sagði áferðina minna á hraun sem hefur kólnað, svokallað apalhraun, sem væri erfitt yfirferðar, nema á sléttari svæðum í miðju gígsins.

„Þetta minnir okkur á íslenska hálendið,“ sagði Koch.

Geimfarið Artemis II er nú á leið aftur til Jarðar eftir sögulegt hjáflug um tunglið í nótt. Þetta er í fyrsta sinn í meira en hálfa öld sem geimfarar ferðast svo langt frá Jörðinni og sjá fjarhlið tunglsins með eigin augum.

Christina Koch við æfingar í Þingeyjarsýslum.
Geimfararnir og vísindateymi Artemis í Þingeyjarsýslum.
Hér sest jörðin í því sem geimfarið Artemis II hvarf bak við tunglið í nótt. Mynd: NASA