Mikil verðhækkun á tölvubúnaði hefur áhrif á sveitarfélög og fyrirtæki í Norðurþingi

Miklar verðhækkanir hafa orðið á tölvubúnaði á undanförnum mánuðum, bæði hér á landi og erlendis. Sem dæmi kostaði 4 TB SSD-geymsludiskur 49.995 krónur í Tölvulistanum á Glerártorgi á Akureyri í byrjun árs, en kostar nú 179.995 krónur. Það er hækkun um 130 þúsund krónur, eða rúmlega 260%, á innan við ári. Hækkunin skýrist af stóraukinni eftirspurn eftir minniskubbum og geymslubúnaði vegna mikillar uppbyggingar gagnavera og gervigreindarþjónustu um allan heim.

Áhrifanna er farið að gæta hjá íslenskum sveitarfélögum, meðal annars hjá Norðurþingi. „Þetta birtist þannig að allur tölvubúnaður sem við kaupum hækkar jafnt og þétt eftir því hvernig okkar birgjar fá inn á lager hjá sér,“ segir Aðalgeir Sævar Óskarsson, verkefnastjóri stafrænna lausna hjá Norðurþingi.

Aðalgeir Sævar segir að verðhækkanirnar hafi enn sem komið er fyrst og fremst haft áhrif á kaup sveitarfélagsins á vélbúnaði en síður á gagnageymslu, enda sé sveitarfélagið með samninga við Microsoft þar sem ákveðið geymslurými er þegar tryggt. Norðurþing kaupir tölvubúnað í gegnum rammasamninga Ríkiskaupa, en að sögn Aðalgeirs hækkar verð um 20–30% þegar eldri birgðir seljenda klárast og nýjar koma í staðinn. „Fyrir sveitarfélög sem reka fjölþætta starfsemi og skóla, þá munar þetta miklu,“ segir hann.

Samkvæmt greiningarfyrirtækinu TrendForce var gert ráð fyrir að samningsverð á NAND-flassminni, sem notað er í SSD-diskum, hækkaði um 70–75% á öðrum ársfjórðungi 2026 einum saman. Í nýjustu spá fyrirtækisins, frá 30. september, er gert ráð fyrir frekari hækkun um 15–20% á síðasta fjórðungi ársins.

Aðalgeir segir að dæmi séu um enn meiri hækkanir á skömmum tíma. „Ég var að ræða við aðila sem var búinn að skoða að kaupa sér vefþjóna fyrir hýsingu, og af því einhver töf varð á kaupunum hækkaði verðið á meðan um 120% á aðeins nokkrum vikum. Þetta er staðan í dag.“ Þróunin getur haft veruleg áhrif á rekstrarkostnað fyrirtækja og opinberra stofnana hér á landi, ekki síst þeirra sem þurfa reglulega að endurnýja tölvur, netþjóna og annan tæknibúnað. Alþjóðlegar markaðsgreiningar benda til áframhaldandi verðþrýstings á minniskubba og geymslubúnað, sem gæti þýtt frekari kostnaðarhækkanir fyrir íslenska kaupendur á næstu misserum.