Hríðarbylur og gul viðvörun á Húsavík á morgun

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir allt landið á morgun, fimmtudag, þegar von er á öflugum suðaustan hríðarbyl.

Gert er ráð fyrir stormi, snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni og er líklegt að samgöngur raskist, bæði á vegum og í flugi.

Á Norðurlandi eystra tekur gul viðvörun gildi klukkan 13 og gildir til klukkan 20. Spáð er austan og suðaustan 13–20 m/s með snjókomu og skafrenningi, einkum á fjallvegum þar sem búast má við versnandi færð.

Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast vel með veðurspám og færð áður en lagt er af stað.