Víða hengjur og hættur í miðbæ Húsavíkur

Víða í miðbæ Húsavíkur hefur skapast veruleg hætta af hengjum og grýlukertum yfir gangstéttum. Til að mynda eru mjög löng grýlukerti á Bjarnahúsi og einnig á Kaupfélagshúsinu og Samkomuhúsinu. Þá eru verulegar hengjur yfir gangstéttum á nokkrum húsum í miðbænum. Húsavík.com bendir húseigendum á að bæta úr og ráðleggur vegfarendum að fara gætilega meðan það hefur ekki verið gert.

Kaupfélagshúsið, þar hefur verið komið fyrir keilum til að vara gangandi vegfarendur við.
Læknishúsið er eitt af mörgum húsum í miðbænum þar sem eru snjóhengjur yfir gangstéttum.