Kvikmyndagerðarfólk frá þýska framleiðslufyrirtækinu Spiegel TV hefur dvalið á Húsavík síðustu þrjá daga við tökur fyrir heimildarþáttaröðina Terra X, sem sýnd eru á þýska ríkissjónvarpinu ZDF. Um er að ræða einn virtasta heimildarþáttaflokk Þjóðverja, með nærri fjögurra áratuga sögu.
Tökur hafa meðal annars farið fram við Dettifoss, sem er kraftmesti foss Evrópu. Þar hefur teymið unnið við krefjandi aðstæður í vetrarumhverfi. „Þessi þáttur fjallar um villt vatn og ég gat vart hugsað mér betri stað en Ísland til að segja þá sögu,“ segir framleiðandinn Almut Fass,í samtali við Húsavík.com. Hún segir að Dettifoss hafi verið sérstaklega áhugaverður vegna uppruna síns og þeim gríðarlegum flóðum sem áttu sér stað fyrir þúsundum ára og mótuðu Jökulsárgljúfur. Einnig var tekið upp í Aðaldalshrauni og við Goðafoss.
„Þú finnur fyrir náttúrunni á mjög sterkan hátt. Þú finnur kraftinn, finnur úðann og ert í raun svo nálægt þessu afl sem ég hef aldrei upplifað svo sterkt áður.“
Almut hefur starfað við sjónvarpsgerð í yfir 30 ár og hefur ferðast víða um heim. Hún segir verkefnið á Íslandi hafa verið sérstaklega eftirminnilegt og að það sé einmitt fjölbreytni staða og upplifana sem geri starfið við þættina Terra X svo heillandi. Það var Film Húsavík sem sá um skipulagningu verkefnisins hér á landi og öll leyfismál í Vatnajökulsþjóðgarði, en fyrirtækið Geo Travel í Mývatnssveit sem sá um akstur að Dettifossi. Teymið frá Spiegel TV dvaldi á Húsavík meðan á tökunum stóð og lét vel af dvölinni. „Mér líkaði mjög vel við Húsavík. Fallegur bær og vinalegt fólk. Ég hefði gjarnan viljað dvelja lengur,“ segir Almut.


