Hart deilt um 190 milljóna frestun framkvæmda: Segir umræðu á testósterón kaffistofum ráða ferðinni

Það er óhætt að segja að farið sé að hitna í kolunum í pólitíkinni í Norðurþingi nú í aðdraganda kosninga, en í vikunni samþykkti Byggðarráð Norðurþings tillögu Hjálmars Boga Hafliðasonar forseta sveitarstjórnar um frestun framkvæmda að upphæð um 190 milljóna króna til ársins 2027. Var tillaga Hjálmars þar samþykkt með atkvæðum fulltrúa meirihlutans í byggðarráði, hans og Helenu Eydísar Ingólfsdóttur. Málið fór svo til afgreiðslu sveitarstjórnar í gær, en þar klofnaði minnihlutinn í afstöðu sinni og sat Benóný Valur Jakobsson  fulltrúi Samfylkingarinnar hjá meðan fulltrúar Miðflokks og Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn henni.

Um er að ræða frestun á nokkrum stærri framkvæmdum, þar á meðal við gólf og stúku í íþróttahöllinni á Húsavík, framkvæmdir við stjórnsýsluhús Norðurþings sem hefur staðið lokað vegna myglu, og framkvæmdir við sundlaug í Lundi. Í bókun meirihlutans kemur fram að sveitarfélagið standi frammi fyrir verulegum fjárhagslegum áskorunum, meðal annars vegna krafna hvalaskoðunarfyrirtækja um endurgreiðslu farþegagjalda sem nema samtals rúmlega 190 milljónum króna. Einnig vegi þungt tekjutap í kjölfar stöðvunar starfsemi PCC á Bakka.

Minnihlutinn gagnrýnir ákvörðunina harðlega. Í bókun lagði Áki Hauksson áherslu á að halda ætti áfram framkvæmdum við stjórnsýsluhúsið við Ketilsbraut til að koma í veg fyrir frekari skemmdir, og tók Ingibjörg Benediktsdóttir fulltrúi Vinstri grænnna í ráðinu undir það.

Áki segur niðurstöðuna dapurlega

Í færslu á samfélagsmiðlum eftir fundinn gagnrýndi Áki ákvörðun meirihlutans harðlega og sagði hana „dapurlega niðurstöðu“. Hann taldi að verið væri að senda neikvæð skilaboð til samfélagsins og gagnrýndi jafnframt að framkvæmdir væru teknar niður vegna krafna hvalaskoðunarfyrirtækja á meðan samningaviðræður við þau væru enn í gangi.

„Þetta stjórnsýsluhúsa mál er búið að þvælast fram og aftur síðan 2024, búið að eyða í leigu um 30 milljónum á ári þar sem enginn vilji er að gera við Ketilsbraut,“ segir Áki og ítrekar áhyggjur sínar af því að dýrt húsnæði sveitarfélagsins verði látið skemmast.

Eiður Pétursson, formaður stjórnar Hafnasjóðs Norðurþings og fulltrúi Framsóknar í sveitarstjórn, svaraði gagnrýninni og lagði áherslu á að ekki væri verið að hætta við framkvæmdir heldur fresta þeim. Hann gagnrýndi jafnframt málflutning minnihlutans og sagði hann óábyrgan. „Segja satt frá Áki, það hlýtur að vera þitt keppikefli. Það er stór munur á að hætta við eða fresta framkvæmdum,“ segir Eiður.

Í samtali við Húsavík.com í gærkvöldi sagði Eiður að minnihlutinn „láti testósterón kaffistofur í bænum ráða ferðinni í stað þess að hlusta á varnaðarráð fjármálastjóra sveitarfélagsins,“ og vitnar þar til þess að frestunartillaga Hjálmars hefur mikið verið rædd á kaffistofum bæjarins frá síðasta fundi ráðsins.