Byggðarráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum í gær að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins verði ekki umfram 2,5% árið 2027. Með ákvörðuninni vill sveitarfélagið stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum og styðja við að gildandi kjarasamningar haldi. Þetta kom fram á vef sveitarfélagsins rétt í þessu.
Málið var tekið fyrir á fundi byggðarráðs við umræðu um gjaldskrár næsta árs. Hámark hækkana miðast við verðbólgumarkmið Seðlabankans og fylgir ályktun sem landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í lok september. Þar voru sveitarfélög hvött til að lýsa yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á næsta ári.
Í bókun byggðarráðs kemur fram að Norðurþing vilji leggja sitt af mörkum til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti, sem bæti hag heimila, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis.
Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að ríki, sveitarfélög og aðrir hagaðilar þurfi að taka höndum saman svo þessi markmið náist.

