Aðeins ein þyrla gæti verið tiltæk vegna umfangsmikilla skoðana

Sú staða kann að koma upp að aðeins ein af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar verði tiltæk í útköll þegar vélarnar fara hver á eftir annarri í umfangsmikla skoðun. Stutt er síðan þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna alvarlegs slyss um borð í skemmtiferðaskipi sem statt var um 13 sjómílur norður af Húsavík. Aðeins eru nokkrir dagar síðan gæslan fór í útkall sem kallaði á tvær þyrlur. Þá hafa þingmenn Norðausturkjördæmis og fleiri kallað eftir því að ein af þyrlum gæslunnar verði staðsett á Akureyri, til að stytta viðbragðstíma norðan og austanlands.

Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar fór í svokallaða C-skoðun í byrjun þesa árs, en það er umfangsmesta skoðun sem vélarnar fara í. Framleiðandinn, Airbus Helicopters, áætlar að slík skoðun taki átta til tólf mánuði, eða jafnvel lengur eftir ástandi vélanna. Nánar er greint frá málinu í Morgunblaðinu í dag.