Katla Sólnes hlýtur styrk frá kvikmyndaakademíunni í Hollywood

Katla Sólnes er á meðal þeirra sem hljóta hinn virta Nicholl-styrk frá Bandarísku kvikmyndaakademíunni í ár, en styrkurinn er veittur upprennandi handritshöfundum fyrir handrit að kvikmynd í fullri lengd.

Handrit Kötlu ber íslenska titilinn Og jörðin klofnaða alelda (Eruption) og gerist á Íslandi snemma á áttunda áratugnum. Þar er sögð saga hjóna þar sem spennu gætir þegar eiginmaðurinn, jarðfræðiprófessor, tekur að sér metnaðarfullan starfsnema frá Bandaríkjunum.

Endurspeglar framtíð frásagnarlistar

Í tilkynningu frá akademíunni kemur fram að styrkþegar í ár séu „óvenju sterkur, fjölbreyttur og alþjóðlegur hópur nýrra höfunda“ sem endurspegli framtíð frásagnarlistar. Með styrknum fylgir ekki aðeins viðurkenning heldur einnig handleiðsla, aðgangur að öflugu tengslaneti og þátttaka í vinnustofum og viðburðum með Óskarsverðlaunahöfum.

Auk Kötlu hlutu tveir einstaklingar og tvö teymi styrkinn að þessu sinni. Þátttakendur fá einnig áframhaldandi stuðning í gegnum svokallað Gold Alumni Network Program sem styður við starfsþróun þeirra.

Katla útskrifaðist með MFA-gráðu frá Columbia-háskóla í New York árið 2024. Á síðasta ári vakti Katla athygli þegar hún var valin í hóp aðeins tólf handritshöfunda úr þúsundum umsækjenda í virt þróunarprógram Sundance-hátíðarinnar. Þar hlaut hún jafnframt styrk til áframhaldandi þróunar kvikmyndaverkefnis síns. Þá hefur hún einnig hlotið viðurkenningu frá Alfred P. Sloan-sjóðnum.

Kvikmyndagerðarkonan Katla Sólnes (ljósmynd úr einkasafni)