Upplýsingaskilti sett upp við Eurovision skýlið

Markþing stóð nýlega fyrir uppsetningu á upplýsingaskiltum við svokallað Eurovision skýli sem stendur við Norðurgarð. Það var TN Prent sem sá um verkefnastýringu, prentun og uppsetningu á skiltunum en um textagerð sá Heiðar Hrafn Halldórsson gjaldkeri stjórnar Markþings.

„Það var auðvitað löngu kominn tími á að klára þetta verkefni en svo skemmtilega vill til að um þessar mundir eru 5 ár síðan að lagið Húsavík fékk tilnefningu sem besta lagið á Óskarsverðlaununum. Við vorum svo heppin að fá TN Prent í lið með okkur en meðal annars þurfti að redda sérútskornum plötum sem pössuðu í glugga skýlisins,“ segir Heiðar og bætir við: „Það sem þyrfti að gerast núna væri að taka niður kantstein hinumegin við götuna og búa til gangbraut yfir. Yfir vetrartímann væri alveg tilvalið að láta ljóskastara lýsa á skýlið og mynda þannig sannakallaða Hollywood stemningu en slíkir kastarar hafa verið notaðir til að lýsa upp bakkann hér rétt vestan við skýlið. Með þessu væri búið að hanna og fullklára algjört skyldustopp fyrir ferðamenn sem heimsækja Húsavík. Hver slíkur staður sem verður til er samfélögum afar verðmætur.“

Samsett mynd: Netflix/Markþing