Fish & Chips Lake Mývatn er besti Fish and Chips staður heims utan Bretlands

Fish & Chips Lake Mývatn vann í dag verðlaunin International Fish and Chips Operator of the Year á The National Fish and Chips Awards 2026 sem fram fór á Park Plaza Westminster Bridge í London.

Fulltrúar Fish & Chips Lake Mývatn eru stödd í London og tóku við verðlaununum síðdegis í dag, en fyrirtækið var eitt þriggja í úrslitum í alþjóðlegum flokki, sem besti alþjóðlegi fish and chips staðurinn. Verðlaunin eru veitt af National Federation of Fish Friers og þykja ein þau virtustu í heimi á sviði fiskirétta.

Sigurinn er stór viðurkenning fyrir ungt fyrirtæki í Mývatnssveit, en staðurinn opnaði árið 2022. Húsavík.com óskar eigendum og starfsfólki til hamingju með þennan stórkostlega árangur.

Verðlaunin voru veitt síðdegis í dag á Park Plaza í London að viðstöddu fjölmiðlum og fjölmenni fiskiáhugafólks.
Mikil viðurkenning fyrir ungt fyrirtæki og sýnir hvað er hægt ef farið er alla leið með góðar hugmyndir.