Björgunarsveitir á Austurlandi aðstoðuðu fjölda vegfarenda í gærkvöld þegar hvessti, skyggni versnaði og færð spilltist. Bílar fóru út af veginum í Langadal og við Skjöldólfsstaði og rúta með fjórtán farþega fór út af um Fagradal ofan við Reyðarfjörð. Fólki var komið til byggða en farartæki skilin eftir.
Þá var haft samband við gönguskíðamann á leið inn á Fjallabak sem hafði skráð ferðaáætlun á Safe Travel. Hann sagðist ætla að hafast við í tjaldi uns veðrið skánaði.

