Ádám læknir heldur í tengslin við Húsavík

Okkar fjölhæfi læknir til margra ára, Ádám Ferenc Gulyas, sérfræðingur í heimilislækningum hjá HSN, segir Húsavík hafa orðið að heimili sínu eftir að hann flutti frá Ungverjalandi til Íslands. Í viðtali á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í dag segir hann frá læknisstarfinu, íslenskunáminu og skákáhuganum. Ádám er nýfluttur til Akureyrar en starfar áfram rúmlega viku í mánuði á Húsavík.

„Ég vildi ekki slíta tengslin við Húsavík. Þar er gott fólk og gott að vinna,“ segir Ádám í viðtalinu. Hann kann vel að meta fjölbreytni starfsins á Húsavík, þar sem verkefnin spanna meðal annars útköll með sjúkrabíl, móttöku og stofugang á sjúkradeild.

Utan vinnunnar skipar skákin stóran sess hjá Ádám, sem er félagi í skákfélaginu Goðanum á Húsavík. Áhuginn tók við sér í heimsfaraldrinum og í sumar náði hann fimmta sæti af fjörutíu keppendum á skákmóti í heimaborg sinni, Debrecen í Ungverjalandi.

Viðtalið má lesa í heild á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.