Forseti á ferð um Þingeyjarsýslur 11. september 2001: „Sálumessa í Þórshafnarkirkju“

Í dag eru 25 ár liðin frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum 11. september 2001. Á sama tíma og heimsbyggðin fylgdist agndofa með atburðunum í New York var Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, staddur í opinberri heimsókn í Norður-Þingeyjarsýslu. Á Þórshöfn tók fyrirfram skipulögð hátíðardagskrá skyndilega allt aðra stefnu.

Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Garðvíkur á Húsavík, var á Þórshöfn þennan örlagaríka dag og segir minninguna enn ljóslifandi.

„Ég man þetta eins og það hafi gerst í gær þegar Magnús Már, þáverandi sveitarstjóri, kom hlaupandi inn í Þórshafnarkirkju, baðaði út öllum öngum og hrópaði: Það flaug flugvél á World Trade Center. Og svo kom bara önnur…“

Forsetaheimsóknin hafði hafist daginn áður og samkvæmt dagskrá forsetaembættisins heimsótti Ólafur Ragnar meðal annars Raufarhöfn og Þórshöfn þessa tvo daga. Á Þórshöfn 11. september stóð meðal annars til að heimsækja kirkjuna, kúfiskverksmiðju, grunnskólann og Naust, hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra.

En meðan dagskráin stóð yfir bárust fréttirnar frá Bandaríkjunum. Tveimur farþegaþotum hafði verið flogið á tvíburaturna World Trade Center í New York og innan skamms var orðið ljóst að um umfangsmikla hryðjuverkaárás væri að ræða. Alls létust 2.977 manns í árásunum þennan dag.

„Dagskráin breyttist,“ rifjar Guðmundur upp. „Sett var upp sálumessa í Þórshafnarkirkju sem séra Sveinbjörn annaðist af stakri prýði. Fréttamenn, sjónvarp, allir upp í skóla í netverinu. Svakalegur dagur.“

Séra Sveinbjörn Bjarnason var þá sóknarprestur á Þórshöfn. Í opinberri dagskrá forsetaembættisins frá þessum degi er sérstaklega skráð að haldin hafi verið dagskrá í Þórshafnarkirkju til að minnast fórnarlamba árásanna í New York. Fórnarlambanna var einnig minnst síðar um kvöldið á fjölskylduhátíð í félagsheimilinu Þórsveri, þar sem Magnús Már Þorvaldsson sveitarstjóri og Ólafur Ragnar Grímsson forseti ávörpuðu samkomuna.

Forseti flutti jafnframt ræðu á Þórshöfn þetta kvöld. „Einhver þyrfti að skrifa sögu þessa dags út frá sjónarmiði Þórshafnar,“ segir Guðmundur.

Nokkrum dögum síðar, við setningu Alþingis, sagði Ólafur Ragnar: „Hryðjuverkin í Bandaríkjunum voru ekki aðeins atlaga að þjóðinni sem þar býr heldur einnig atlaga að mannkyni öllu og þeim gildum sem verið hafa burðarásar í samfélagi siðaðra manna. Á morgunstundu létu þúsundir saklausra borgara lífið og sárin í sálu þeirra sem eftir lifa eru svo djúp að þau munu aldrei gróa að fullu. Árásin var hræðilegri og miskunnarlausari en við höfum áður getað gert okkur í hugarlund og þeir sem glæpinn skipulögðu skýla sér enn bak við leyndarhjúp nafnleysis og þagnar; tilgangurinn hulinn; markmiðin hjúpuð myrkri.“

Fjórðungi aldar síðar er dagurinn enn í fersku minni þeirra sem upplifðu hann þar, dagurinn þegar heimsviðburður sem breytti gangi sögunnar braust með óvæntum hætti inn í hversdaginn á Þórshöfn.