Börn að leik á Húsavík árið 1953 er mynd vikunnar hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur birti í gær fallega mynd af leikvelli við Barnaskólann á Húsavík, nú Borgarhólsskóla, en myndin var mynd vikunnar á vef safnsins.

Myndina tók ljósmyndarinn Gunnar Rúnar Ólafsson árið 1953 og gefur hún skemmtilega innsýn í bæjarlíf Húsvíkinga um miðja síðustu öld.

Húsavík.com hringdi í Ljósmyndasafn Reykjavíkur og ræddi við starfsmann safnsins sem sagði að ein mynd væri valin til birtingar í hverri viku úr gagnagrunni Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Stundum væru myndirnar valdar í tengslum við eitthvað sem væri í umræðu í samfélaginu, til dæmis kvennafrídaginn eða 1. maí, en stundum væru þetta einfaldlega tækifærismyndir.

Húsavík.com mælir með því að lesendur skoði vef Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Þar má finna ýmsar áhugaverðar myndir frá Húsavík inn á milli og auðvelt er að leita í gegnum safnið.