Leikskólar eru hornsteinn í velferð barna og barnafjölskyldna í velferðarsamfélagi nútímans. Þar þroska þau andlegan/tilfinningalegan, félagslegan og líkamlegan þroska, að mestu í gegnum leik, félagslega virkni og sköpun af ýmsu tagi í örvandi umhverfi.
Í Norðurþingi gegna leikskólarnir Grænuvellir á Húsavík og Lundarkot Öxarfirði mikilvægu hlutverki. Á Grænuvöllum eru um 150 nemendur og um 50 starfsmenn. Í Lundarkoti eru um 20 nemendur og 5 starfsmenn.
Aðstæður starfsfólks og barna í forgang
Gæði leikskólastarfs ráðast fyrst og fremst af því fagfólki sem þar starfar, leikskólakennurum, öðru fagfólki og virkri þátttöku foreldra. Við leggjum áherslu á að styrkja starfsfólk í sínum störfum og bæta starfsaðstæður. Þar skiptir máli að huga að loftgæðum og hljóðvist, sem og að tryggja að húsnæði sé heilsusamlegt og viðeigandi búnaður sé til staðar hverju sinni.
Raunhæf skref
Við í X-M Lista Samfélagsins höfum skýra stefnu þegar kemur að skipulagi og starfi leikskólanna.
Fjárhagslegar aðstæður barnafjölskyldna eru oft þröngar. Foreldrar eru að koma yfir sig húsnæði, stunda eða ljúka námi og hafa aukinn kostnað vegna uppeldis barna. Við viljum styrkja fjárhagslega stöðu þeirra og möguleika til að vera á vinnumarkaði.
Heiðaleg kosningaloforð
Við leggjum áherslu á heiðarleika í okkar málflutningi, öll loforð þurfa að vera raunhæf. Fjárhagsstaða Norðurþings, ytri áföll s.s. lokun PCC, minnkandi tekjur hafna af ýmsum ástæðum, leyfa einfaldlega ekki loforð sem byggja á sandi einum saman.
Sveigjanleiki fyrir fjölskyldur og starfsfólk
Við viljum auka sveigjanleika og valfrelsi foreldra og jafnframt styðja möguleika þeirra á vinnumarkaði:
- Við munum fella niður skráningardaga í leikskólum, sem oft hafa reynst foreldrum, börnum og aðstandendum og atvinnulífinu illa.
- Við viljum innleiða valkvæðar heimgreiðslur fyrir foreldra barna á aldrinum 12–24 mánaða. Foreldrar sem kjósa að fresta leikskólagöngu barna sinna geta valið að fá 150.000 krónur á mánuði í heimgreiðslur án flókinna skilyrða. Í þessu sambandi er m.a. horft til sérstakra aðstæðna barna og foreldra.
- Við viljum bjóða upp á sveigjanlegt sumarleyfi fyrir börnin, foreldra og starfsfólk. Foreldrar, börnin og starfsfólk vilja þó gott sumarleyfi saman. Við viljum gera allt til þess að hver og ein fjölskylda og starfsmaður taki í a.m.k. fjögra vikna sumarleyfi á tímabilinu júní – júlí – ágúst ár hvert. Þessi sveigjanleiki styrkir einnig atvinnulífið, en mörg fyrirtæki eiga erfitt með að missa flesta starfsmenn á sama tíma.
- Við viljum skoða möguleika á skólaakstri leikskólabarna frá Kópaskeri og Raufarhöfn í Lundarkot.
- Við viljum áætlun um viðhald og endurbætur. Strax þarf að stöðva leka og ráðast í að laga rakaskemmdir í Lundarkoti og ljúka endurbótum á starfsmannahúsi Grænuvalla og hljóðvist og loftgæðum.
Samfelld þjónusta milli skólastiga
Við leggjum áherslu á að halda áfram góðri samvinnu milli leikskóla og annarra skólastiga í Norðurþingi. Við styðjum þau mikilvægu þróunarverkefni sem í gangi eru t.d. Lítil skref á leið til læsis – samstarf leik- og grunnskóla um málörvun og læsi.
Við viljum einnig halda áfram að samhæfa, eins og kostur er, starfstíma og leyfi leikskólanna við önnur skólastig á Húsavík og í Lundi.
Ábyrg stefna og reynsla
Við í X-M Lista Samfélagsins stöndum fyrir ábyrgum málflutningi og bjóðum reynslu okkar fyrir Norðurþing.
Við styðjum barnafjölskyldur með raunhæfum aðgerðum sem skila árangri. Með því að efla leikskólana, bæta aðstæður með reglubundnu viðhaldi og endurbótum og auka sveigjanleika fjölskyldna, byggjum við upp sterkara samfélag.
Við erum klár til verka fyrir fjölskyldur í Norðurþingi!
Rúnar Traustason, oddviti X-M Lista Samfélagsins

