Þakklæti

Öflugt samfélag Nú þegar kosningabaráttan í Norðurþingi er að ljúka viljum við á M – Lista Samfélagsins færa íbúum, starfsfólki sveitarfélagsins, fyrirtækjum, stofnunum, félögum og öllum þeim sem hafa tekið svo vel á móti okkur innilegar þakkir fyrir móttökurnar. Undanfarnar vikur höfum við farið um allt sveitarfélagið, heimsótt stofnanir, …

Borgarhólsskóli og Öxarfjarðarskóli – hjarta samfélagsins og fjárfesting í framtíð

Sem frambjóðendur til sveitarstjórnar í Norðurþingi fyrir X-M lista Samfélagsins viljum við beina sjónum að tveimur lykilstofnunum sveitarfélagsins: Borgarhólsskóla og Öxarfjarðarskóla. Hlutverk grunnskóla, í nánu samstarfi við heimilin, er að styðja við nám og alhliða þroska nemenda og undirbúa þau fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi. Stórar og mikilvægar stofnanir Borgarhólsskóli …

Leikskóli

Leikskólar eru hornsteinn í velferð barna og barnafjölskyldna í velferðarsamfélagi nútímans. Þar þroska þau andlegan/tilfinningalegan, félagslegan og líkamlegan þroska, að mestu í gegnum leik, félagslega virkni og sköpun af ýmsu tagi í örvandi umhverfi. Í Norðurþingi gegna leikskólarnir Grænuvellir á Húsavík og Lundarkot Öxarfirði mikilvægu hlutverki. Á Grænuvöllum eru …

Meira um mannréttindi

X-M Listi Samfélagsins í Norðurþingi er breiður hópur af reynslumiklu fólki úr atvinnulífi, fræðslu- og menntamálum, félagsþjónustu, vinnumarkaðsmálum og úr lífinu sjálfu. Við erum þekkt andlit úr samfélaginu í Norðurþingi, flestir þekkja til okkar, fjölskyldna okkar, félagslegrar stöðu og verkefna okkar í frístundum, félagsmálum og störfum. Okkur er vel …

Um Ketilsbraut 7-9

Undanfarin tvö ár hefur starfsemi stjórnsýslu og félagsþjónustu Norðurþings verið á hrakhólum og leigt hefur verið undir starfsemina húsnæði að Garðarsbraut 5, í daglegu tali oft kallað Kaupfélagshúsið, og húsnæði að Túngötu 1. Þessir flutningar eru tilkomnir vegna rakaskemmda og myglu í stjórnsýsluhúsinu Ketilsbraut 7-9 og áhrifa þess á …