Sem frambjóðendur til sveitarstjórnar í Norðurþingi fyrir X-M lista Samfélagsins viljum við beina sjónum að tveimur lykilstofnunum sveitarfélagsins: Borgarhólsskóla og Öxarfjarðarskóla.
Hlutverk grunnskóla, í nánu samstarfi við heimilin, er að styðja við nám og alhliða þroska nemenda og undirbúa þau fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi.
Stórar og mikilvægar stofnanir
Borgarhólsskóli Húsavík er stærsti vinnustaður sveitarfélagsins með 286 nemendur og 63 starfsmenn. Í Öxarfjarðarskóla Lundi eru 38 nemendum og 10 starfsmenn.
Á árinu er reiknað með að rekstrarútgjöld Borgarhólsskóla verði 861 millj. og mötuneytis 112 millj.. Þar er einnig framleiddur matur fyrir leikskólann Grænuvelli. Rekstrarútgjöld Öxarfjarðarskóla eru áætluð 112 millj..
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga tekur þátt í kostnaði með framlögum vegna m.a. skólaaksturs, sérþarfa nemenda og gjaldfrjálsra skólamáltíða. Í báðum skólum er rekið mötuneyti og tónlistarkennsla í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur. Í Öxarfjarðarskóla er einnig leikskólinn Lundarkot.
Öflugur mannauður
Í skólunum starfar öflugur hópur fagfólks með fjölbreytta menntun og reynslu. Kennarar, annað sérhæft starfsfólk og sérfræðingar. Hlutverk þeirra er að skapa öruggt og þroskavænlegt námsumhverfi þar sem allir nemendur fá tækifæri til að þróa líkamlegan, andlegan og félagslegan þroska.
Fjölbreytileikinn er styrkur – og það krefst fagmennsku, sveigjanleika og metnaðar að mæta honum á farsælan hátt. Í skólunum eru 54 börn af erlendu bergi.
Vellíðan og skýr gildi
Vellíðan nemenda er grunnforsenda náms. Skólarnir vinna eftir skýrum gildum og uppeldisstefnu, þar á meðal Jákvæðum aga, sem leggur áherslu á virðingu, ábyrgð og lausnamiðaða nálgun.
Frumkvæði og árangur
Í yngri bekkjum er unnið eftir Byrjendalæsis stefnunni sem leggur sterkan grunn að lestri og málþroska. Árangur þróunarstarfs hefur þegar skilað sér – árið 2025 hlaut Borgarhólsskóli ásamt leikskólanum Grænuvöllum Íslensku menntaverðlaunin fyrir verkefnið Lítil skref á leið til læsis. Nýverið fékk verkefnið nýjar úthlutanir fjármuna til áframhaldandi þróunar.
Ný tækifæri – og brýn verkefni
Nýtt frístundarhús rís við Borgarhólsskóla og verður tekið í notkun haustið 2026. Þar skapast aðstaða fyrir fjölbreytt tómstunda- og félagsstarf og gefur fjölda möguleika fyrir frístund og fjölbreyttar kennsluaðferðir og þemastarf.
Áfram blasa við brýn verkefni í Borgarhólsskóla, s.s. aðkallandi viðhald og uppærsla á mötuneyti/sal, hljóðvistarvinna og vinna við skólalóð.
Í Öxarfjarðarskóla þarf að ráðast í viðgerðir á húsnæði, sem hefur lekið í mörg ár. Bæta þarf aðstöðu leikskólans og halda áfram endurbyggingu á lóð. Aðkallandi er að stækka og bæta lóð leikskólans sem fyrst, en hún hefur fengið falleinkunn hjá úttektaraðilum. Þá er nauðsynlegt að ráðast í nauðsynlegar endurbætur á sundlauginni í Lundi, sem hefur ekki verið notuð s.l. ár og liggur undir frekari skemmdum.
Gott má alltaf bæta
Við viljum halda áfram að efla skólastarfið, styðja við nýsköpun og tryggja gott samstarf skóla, heimila og samfélags. Mikilvægt er að hlusta á nemendur, foreldra og starfsfólk og tryggja að skólarnir fái og hafi þá möguleika sem þarf til vaxtar, þróunar og lagfæringa.
Framtíð Norðurþings ræðst af því hvernig við hlúum að börnum og ungmennum í Norðurþingi. Með öflugu skólastarfi, góðri aðstöðu og skýrri sýn getum við skapað samfélag þar sem fólk vill búa og starfa.
Við erum klár til verka fyrir Norðurþing!
Góðar kveðjur!
Rúnar Traustason, oddviti M – Lista Samfélagsins.
Hilda Rós Pálsdóttir umsjónarkennari Borgarhólsskóla, skipar 5. sæti á M – Lista Samfélagsins.

