Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga kom færandi hendi í leikskólann Grænuvelli í dag með sólarvörn handa öllum deildum leikskólans.
„Það er gott að eiga góða að og nú voru öðlingarnir í Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga að koma færandi hendi með sólarvörn handa öllum deildum. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og takk fyrir innlitið Guðrún og Ásgerður. Nú má sú gula láta sjá sig, við erum tilbúin,“ skrifar Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, skólastjóri leikskólans Grænuvalla, á Facebook síðu skólans.

