Dagskrá alla vikuna í Eurovision safninu: Sýna keppnina á risa tjaldi

Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision keppninnar fer fram í kvöld og verðu sýnt verður beint frá keppninni á risatjaldi í Eurovision safninu. 

Húsavík.com ræddi við Gerd Eston hjá Jaja Ding Dong barnum sem segir Eurovision vikuna alltaf sérstakan tíma á Húsavík. „Þetta er náttúrulega augljósi staðurinn til að fylgjast með Eurovision á Íslandi,“ segir Eston og bendir á tenginguna við kvikmyndina, safnið og alla Eurovision aðdáendur sem heimsækja bæinn ár hvert. 

Í gær var sýnd heimildamynd um þátttöku Hatara í Eurovision í Tel Aviv árið 2019 og á föstudagskvöld verður svo haldið silent disco í safninu. 

Fyrir sjálfan úrslitadaginn á laugardag verður Eurovision PubQuiz áður en beina útsendingin hefst. Að sögn Estons er gestahópurinn fjölbreyttur og samanstendur bæði af heimafólki, erlendu starfsfólki á svæðinu og ferðamönnum sem sérstaklega hafa haft samband til að spyrjast fyrir um Eurovision dagskrána á Húsavík. „Það er alltaf gaman að sjá Eurovision sameina fólk,“ segir hann.

„Þó fólk hafi mismunandi smekk á tónlist er alltaf skemmtilegt að ræða lögin og keppnina á jákvæðan hátt.“ Eston segir Eurovision hafa fylgt sér nánast alla ævi. Hann man fyrst eftir keppninni árið 2007 þegar hann hélt með Eistlandi og hefur síðan fylgst grannt með bæði Eurovision og þjóðlegum undankeppnum víða um Evrópu. Síðustu ár hefur hann einnig verið virkur í Eurovision samfélaginu á YouTube og segist hafa kynnst fjölda aðdáenda í gegnum það.

Þrátt fyrir að Eurovision hafi breyst mikið undanfarin ár, sérstaklega vegna umdeildrar þátttöku Ísraels, segir hann ástríðuna enn sterka: „Eurovision er mjög djúpt í mér og verður alltaf stór hluti af lífinu.“