Meira um mannréttindi

X-M Listi Samfélagsins í Norðurþingi er breiður hópur af reynslumiklu fólki úr atvinnulífi, fræðslu- og menntamálum, félagsþjónustu, vinnumarkaðsmálum og úr lífinu sjálfu.
Við erum þekkt andlit úr samfélaginu í Norðurþingi, flestir þekkja til okkar, fjölskyldna okkar, félagslegrar stöðu og verkefna okkar í frístundum, félagsmálum og störfum.
Okkur er vel tekið, við kynnum óhrædd og stolt málefni okkar og stefnu og erum óhrædd að koma fram með tillögur að betra Norðurþingi.
Undanfarna daga hafa einstaklingar í Norðurþingi verið með orðræðu í okkar garð sem við teljum mikilvægt að bregðast við af yfirvegun og virðingu. Okkur þykir miður að orð, viðhorf eða afstaða annarra séu eignuð okkur. Þau endurspegla ekki sjónarmið okkar.

Við gerum betur

Við viljum leggja áherslu á að markmið okkar allra ætti að vera sameiginlegt: Að stuðla að velferð, réttlæti og uppbyggilegum samskiptum í samfélaginu. Við berum virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og trúum því að opið samtal, byggt á gagnkvæmum skilningi, sé lykillinn að farsælli lausn mála.
Við erum reiðubúin til að taka þátt í málefnalegri umræðu þar sem hlustað er á ólík sjónarmið og leitast við að finna sameiginlegan grundvöll. Með því móti teljum við að hægt sé að draga úr misskilningi og efla traust, öllum til heilla.

Við styðjum öll

Innan okkar framboðs er fólk sem hefur áratugum saman staðið í réttindabaráttu m.a. fyrir einstaklinga með mismunandi kynvitund og kynhneigð, börn, aldraða, fatlaða og þolendur brota á vinnumarkaði. Með okkur eru einnig stoltir styðjandi foreldrar, afar, ömmur og systkini barna sem eru allskonar og vilja fá að vera þannig.
Við leggjum áherslu á að jafnrétti og réttindagæsla byggist á virku samtali þar sem hlustað er á ólík sjónarmið af virðingu og heiðarleika. Ákvarðanir skulu teknar með hagsmuni allra að leiðarljósi, á grundvelli sanngirni, gagnsæis og fordómalausrar nálgunar.

Stígum fram

Þeir sem stíga fram og berjast fyrir bættum réttindum og aukinni vernd eiga skilið áheyrn, stuðning og virðingu. Við erum staðráðin í að standa með þeim og leggja okkar af mörkum til að efla réttlátt, öruggt og fordómalaust samfélag fyrir alla óháð þjóðerni, kyni, kynhneigð, aldri og trú.
Við leggjum ríka áherslu á að stjórnsýsla Norðurþings virði réttindi íbúa, starfsmanna og sérstaklega viðkvæmra hópa og fari eftir settum lögum, sáttmálum og vandaðri stjórnsýslu í því efni. Jafnrétti, mannréttindi og réttindagæsla verður ekki formsatriði heldur leiðarljós í starfi og ákvarðanatöku.
Við skorum á önnur framboð í Norðurþingi að koma í lið með okkur.

Við erum klár til góðra verka!

Rúnar Traustason, oddviti X-M Lista Samfélagsins Norðurþingi.
Hallur Lund, skipar 7. sæti á X-M Lista Samfélagsins Norðurþingi.