Gentle Giants: Himinlifandi ferðafólk fylgist með dansi tveggja steypireyða á Skjálfanda

Fyrsti steypireyður sumarsins gladdi gesti Gentle Giants í ferð á Skjálfanda um helgina og sást aftur í gær í ferð þar sem blaðamaður Húsavík.com var með í för. Sjónin var sannarlega tignarleg.

Það var Sverrir Yngvi Karlsson sem var skipstjóri í ferðinni um helgina sem sá þá fystu og þegar blaðamaður ætlaði að hringja í hann í morgun hafði hann lítinn tíma til að tala, enda var önnur steipireyð mætt og mikil gleði hjá 10 farþegum um borð í Ömmu Kibbu á flóanum sem í þessum skrifuðu orðum fylgjast með dansi þeirra. „Ég er að horfa á þær núna meðan ég tala við þig og þú getur bara rétt ímyndað þér gleðina hérna um borð,“ sagði Sverrir kampakátur þegar blaðamaður náði örstuttu tali af honum.

Steypireyðar eru stærstu dýr jarðar svo koma þeirra í upphafi sumars telst alltaf til tíðinda.

Steypireyður sú sem sást í gær er blaðamaður Húsavík.com var í ferð með Stefáni Guðmundssyni forstjóra Gentle Giants úr Flatey til Húsavíkur.