Það er líf og fjör á mánudögum í Rauða kross búðinni á Húsavík við Vallholtsveg, þar sem áður var rekið farfuglaheimili um árabil. Þar kemur saman öflugur hópur sjálfboðaliða sem leggur sitt af mörkum við að taka á móti gjöfum, flokka, þrífa, verðmerkja og stilla upp vörum fyrir vikuna framundan.
Alls eru um 20 sjálfboðaliðar starfandi við búðina og koma þeir víða að. Þar má finna fólk frá Íslandi, Póllandi, Þýskalandi, Lettlandi og Frakklandi, en margir hafa búið lengi hér á landi og nýta tækifærið um leið til að æfa íslenskuna.
„Alla mánudaga komum við saman og förum yfir það sem okkur hefur borist, yfirförum, þvoum og stillum upp og gerum búðina fína fyrir vikuna,“ segir Sigrún Elín Brynjarsdóttir í samtali við Húsavík.com.
Búðin tekur við nánast öllu sem er heilt og hreint. Þar má nefna allt frá fatnaði og heimilisvörum yfir í óopnaða kassa af ýmsum varningi, svo sem rúðuþurrkum, ljósum eða veggfestingum fyrir sjónvörp. Sumt þarf þó að láta meta áður en það fer í sölu.
„Stundum getum við ekki sett allt fram sem við fáum þar sem við þurfum að láta meta það fyrir okkur, til dæmis þessi söfnunarmerki frá Rússlandi og seinni stríðinu,“ segir Sigrún.

Fatnaðurinn sem seldur er í búðinni kemur frá flokkunarstöð Rauða krossins á Akureyri, þar sem stór flokkunarstöð sér um að dreifa fötum til verslana víða um land.
Sjálfboðaliðarnir skipta með sér vöktum á tveggja til fjögurra vikna fresti eftir því hvað hentar hverjum og einum.
„Við höfum haft lúxusvandamál síðan við opnuðum aftur hversu vel mannaðar við erum, en getum enn bætt í hópinn. Þá gætum við aukið opnunartímann og haft opið fleiri daga í viku. Því margar hendur vinna létt verk,“ segir Sigrún.
Hún vill einnig koma á framfæri þökkum til fyrirtækja sem hafa sýnt starfseminni mikla velvild og verið gjafmild.
„Ég verð að þakka góðvild fyrirtækja sem hafa verið gjafmild, til dæmis Norðurvík, Víkurraf og Garðarshólmi.“
Sérstaklega nefnir hún framlag sjálfboðaliðans Elke sem hefur lagt mikið af mörkum, bæði með vinnu sinni og veraldlegum hlutum, sérstaklega eftir að hún hætti að reka Green Hostel. Um helgina ætlar Rauði Krossinn að selja ýmislegt úr innbúi hostelsins og lætur Elke stóran hluta söluandvirðisins renna til starfsemi Rauða Krossins á Húsavík.


