Svavar Pálsson, sýslumaður Norðurlands eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, er ekki meðal umsækjenda um nýtt embætti Sýslumanns Íslands sem tekur við þegar öll sýslumannsembætti landsins verða sameinuð í eitt um næstu áramót.
Í samtali við Húsavík.com segir Svavar að um persónulega ákvörðun sé að ræða.
Athygli vekur að af sjö umsækjendum eru fjórir starfandi á höfuðborgarsvæðinu, tveir af áhrifasvæði þess á Suðurnesjum og Suðurlandi, en aðeins einn umsækjandi kemur af landsbyggðinni utan þess svæðis, af Vestfjörðum.
Margir viðmælendur Húsavík.com hafa lýst yfir áhyggjum af því að sameining sýslumannsembættanna leiði til frekari miðstýringar og að störf og áhrif flytjist í enn auknum mæli á höfuðborgarsvæðið. Í lögunum sem Alþingi samþykkti 2. febrúar síðastliðinn er sérstaklega kveðið á um að hið minnsta 65% stöðugilda hins nýja embættis skuli vera á landsbyggðunum.
Við starfsstöð Sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra á Húsavík starfa í dag fimm almennir starfsmenn auk sýslumanns, en aðalskrifstofa embættisins hefur verið á Húsavík undanfarin ár.
Á síðasta kjörtímabili vann Byggðastofnun staðarvalsgreiningu á hentugasta stað fyrir eitt sameinað sýslumannsembætti og var Húsavík þar talin besti kosturinn. Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, lagði síðar fram frumvarp þar sem gert var ráð fyrir að nýr Sýslumaður Íslands yrði staðsettur á Húsavík, en það náði ekki fram að ganga.
Umsækjendur um embættið eru:
Einar Jónsson, sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs og staðgengill sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu
Jóhann Gunnar Þórarinsson, sviðsstjóri leyfisveitinga og eftirlits með gististöðum hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu
Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi og settur sýslumaður í Vestmannaeyjum
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Skúli Hakim Thoroddsen Mechiat, löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Vestfjörðum
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum
Veturliði Þór Stefánsson, skrifstofustjóri skrifstofu þjónustu í utanríkisráðuneytinu

