Á Húsavík kvikna hugmyndir!

Marel-vogin, Húsavíkur jógúrt, Havarti og Naggar eru allt dæmi um framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir sem þróuðust í atvinnulífi sem einu sinni var á Húsavík.

Umhverfi og tækifæri fyrir þróun slíkra hugmynda hefur þroskast og breyst mikið á undanförnum árum. Frumkvöðlum sem eru að stíga sín fyrstu skref með hugmyndir sínar og fyrirtækjum sem eru í vöruþróun býðst í dag ráðgjöf, hugmyndahraðhlaup, viðskiptahraðlar, samkeppnir, styrkir og lán til að þróa hugmyndir sínar, gera viðskiptaáætlanir, stofna fyrirtæki og hefja framleiðslu eða bjóða nýja þjónustu. 

Hér á Húsavík er nokkuð vel búið að þeim sem vilja þróa nýja vöru eða þjónustu. Í Hraðinu og Fab Lab Húsavík, sem er hluti af Þekkingarnetinu, stendur til boða skrifstofuaðstaða fyrir frumkvöðla til vinnu og þeir geta nýtt FabLabið til að gera frumgerðir að vörum sínum. Hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra er hægt að sækja ráðgjöf m.a. við gerð viðskiptaáætlana. Sveitarfélagið Norðurþing er hluti af félagasamtökunum ásamt því að í gildi eru samningar um stuðning við Hraðið og Fab LabHúsavík. Þannig hefur sveitarfélagið stutt við þróun nýsköpunar og atvinnulífs og bætt aðstæður íbúa og fyrirtækja í Norðurþingi til að þróa næstu byltingarkenndu hugmynd að vöru eða þjónustu. Að auki hefur aðgengi skóla samfélagsins að Fab Labinu verið tryggt með samningunum og þannig hvetjum við strax til frumkvöðla- og nýsköpunarhugsunar frá barnsaldri.

Á fundi sínum á sumardaginn fyrsta bókaði byggðarráð Norðurþings að Húsavík væri Nýsköpunarbærinn. Við í Sjálfstæðisflokknum stöndum heilshugar á bakvið þessa bókun. Við teljum mikilvægt að styðja áfram við nýsköpunarumhverfið sem þróast hefur hér á Húsavík á undanförnum áratugum, annars vegar sjálfsprottið í atvinnulífinu, sem leiddi meðal annars af sér þróun vogarinnar í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur sem síðar varð grunnurinn að fyrirtækinu Marel, og hins vegar það sem hefur þróast með hraði undanfarin ár með tilkomu Hraðsins og Fab Labsins og aðstöðunni sem þar er. 

Við viljum áfram styðja við Hraðið og Fab Lab Húsavík en einnig leita leiða í samstarfi við hagaðila til að efla enn frekar umhverfi nýsköpunar á Húsavík. Við viljum meðal annars kanna hvort hægt er að koma upp aðstöðu á Húsavík, áþekkri matarskemmum sem eru víða um land. Við viljum kanna hvort hægt er að afla stuðnings við uppbyggingu slíkrar aðstöðu úr byggðaáætlun og með samstarfi við fyrirtæki í sveitarfélaginu og þá nýsköpunarinnviði sem þegar eru til staðar. Okkar skoðun er að öflugt nýsköpunarumhverfi leiðir af sér fjölbreyttara atvinnulíf og sterkara samfélag í Nýsköpunarbænum Húsavík og þar með sveitarfélaginu öllu.

About Helena Eydís Ingólfsdóttir

View all posts by Helena Eydís Ingólfsdóttir →