Helena forseti sveitarstjórnar og Bergþór ráðinn sveitarstjóri

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar Norðurþings fór fram í dag þar sem nýr meirihluti tók formlega við stjórn sveitarfélagsins. Á fundinum var kosið í helstu embætti, ráð og stjórnir auk þess sem ráðningarsamningur Bergþórs Bjarnasonar sem nýs sveitarstjóra var samþykktur samhljóða.

Helena Eydís Ingólfsdóttir var kjörin forseti sveitarstjórnar. Rúnar Traustason var kjörinn fyrsti varaforseti og Eysteinn Heiðar Kristjánsson annar varaforseti.

Í byggðarráð var Kjartan Páll Þórarinsson kjörinn formaður og Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður. Aldey Unnar Traustadóttir verður þriðji aðalfulltrúi ráðsins.

Rebekka Ásgeirsdóttir var kjörin formaður fjölskylduráðs og Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður. Þá var Þorsteinn Snævar Benediktsson kjörinn formaður skipulags- og framkvæmdaráðs og Bylgja Steingrímsdóttir varaformaður.

Í hafnarstjórn var Eiður Pétursson kjörinn formaður og Kristján Friðrik Sigurðsson varaformaður.