Starfsmannafélag Húsavíkur kom nýverið færandi hendi í Leikskólann Grænuvelli og færði skólanum veglega gjöf sem ætlað er að styðja við fjölbreytt nám og þroska barna á leikskólaaldri.
Gjöfin felst í kaupum á fjölbreyttum byggingar- og STEM-kubbum sem munu nýtast börnunum í leik og námi á komandi árum. Kubbarnir styðja sérstaklega við innleiðingu STEM-kennslu á Grænuvöllum, en leikskólinn vann á sínum tíma sérstaka innleiðingaráætlun í STEM-kennslu leikskólabarna í þróunarverkefni í samstarfi við STEM Húsavík.
Leikur með kubba, hvort sem um er að ræða hefðbundna byggingarkubba, segulkubba, LEGO eða önnur sambærileg byggingarefni, er ein fjölbreyttasta námsaðferð sem völ er á fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Í gegnum leikinn þróa börnin samtímis vísindalega hugsun, stærðfræðiskilning, verkfræðilega færni, málþroska, félagsfærni og skapandi hugsun. Þá styður kubbaleikur einnig við alhliða þroska barnanna, bæði vitsmuna-, hreyfi- og félagsþroska.
Fjármagnið til kaupanna kemur úr Starfsmenntasjóði Starfsmannafélags Húsavíkur sem sveitarfélagið Norðurþing greiðir í fyrir starfsmenn sína. Með gjöfinni vill félagið leggja sitt af mörkum til að efla skólastarf og námsumhverfi barna í sveitarfélaginu.
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, skólastjóri Grænuvalla, tók við gjöfinni fyrir hönd leikskólans og þakkaði Starfsmannafélagi Húsavíkur fyrir stuðninginn og hlýhuginn í garð skólans.
„Velvilji sem þessi frá félagasamtökum skiptir verulega miklu máli fyrir skólastarfið og skapar okkur tækifæri til að efla enn frekar það öfluga nám sem fram fer hjá börnunum,“ sagði Sigríður við afhendinguna.
Á meðfylgjandi mynd eru Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir skólastjóri Grænuvalla og Hermína Hreiðarsdóttir, formaður Starfsmannafélags Húsavíkur.

