Óskalistinn er glænýtt framboð, samansett af fólki úr hinum ýmsu stéttum úr atvinnulífinu. Iðnaðarmenn, sjómenn, kennari, rithöfundur, bókari, bændur, verktakar, sjúkraflutningamaður,verkamenn og allskonar annað.
Flest á listanum eigum við það sameiginlegt að hafa litla eða jafnvel bara enga reynslu úr sveitarstjórnarsetu eða annari vinnu er viðkemur pólitík. Við erum hinsvegar alveg viss um það, að við getum alveg lært það, eins og þeir sem á undan hafa setið.
Einhversstaðar og einhverntímann þarf fólk að byrja og enginn verður betri fái hann aldrei tækifæri til að læra. Undirritaður hefur reyndar setið í hverfisráði, og er þá upptalin öll reynsla mín á þessum vettvangi.
Þegar horft er á listann er vissulega hægt að halda því fram að hann sé svolítið einsleitur. Af því leyti að allir, nema einn, af þeim 18 frambjóðendum sem á honum eru, eru frá svæðinu austan Tjörness. Fyrir því er svo sem ástæða, fleiri en ein, t.d. gekk illa að ná fólki frá Húsavík á listann.
Okkur, í dreifðari byggðum Norðurþings, hefur stundum fundist við útundan í samtalinu og ákvörðunum er varða sveitarfélagið.
Jú vissulega hefur fólk af austursvæðinu t.d. verið ofarlega á listum í kosningum í gegnum árin. Hinsvegar í 20 ára sögu Norðurþings, hefur ALDREI komið framboð þar sem oddviti einhvers lista er af austursvæðinu. Fyrr en núna. Óskalistinn er semsagt fyrsta framboðið sem státar af “austan” manni í efsta sæti. Ég veit vissulega ekki hvað gerist á bak við tjöldin í öðrum framboðum, kannski var einhverjum boðið að taka það að sér einhvers staðar, en það hefur þá ekki náð að komast í framkvæmd. Einnig mætti líka taka það fram,að komum við manni inn sem svo af einhverjum ástæðum dettur út,þá eru næstu sæti fyrir neðan skipuð einhverjum héðan þannig að þá kæmi annar af svæðinu inn í staðinn,það er líka nýlunda.
Eins og ég sagði hefur það komið fyrir að “við” eigum nafn ofarlega á lista, og svo hefur nöfnum verið dreift hér og þar, yfirleitt frekar neðarlega og þar af leiðandi ekki í beinu baráttusæti, kannski til að ná sér í atkvæði úr þessum dreifðu byggðum?
Reynsla þeirra sem voru sett ofarlega á lista, og jafnvel komust inn ,var þó þannig að málin sem þau komu með og voru þeim stundum hjartans mál, fengu ekki alltaf mikinn hljómgrunn, og voru jafnvel stoppuð af frekar snemma í ferlinu. Var það af því að þeirra hlutverki var lokið? Atkvæðin úr dreifðu byggðunum voru komin og þá var hægt að halda bara áfram.
Við í Óskalistanum erum þó alveg skýr með það markmið og þá stefnu, að þó við segjum að okkur finnist við hafa verið utanvið í gegnum tíðina, að við ætlum ekki að fara í einhvern “austur á móti vestur”,ekki “við á móti þeim” leik, komumst við að í sveitarstjórn.
Þvert á móti langar okkur að styrkja samvinnu og samheldni á milli allra svæða í þessu gríðarlega víðfeðma sveitarfélagi sem við eigum jú öll saman. Það er fullkomlega eðlilegt að ég þekki ekki öll þau verk eða þau mál sem eru nauðsynleg að ganga í á t.d Húsavík, eða Reykjahverfi, ef því er að skipta, af því að ég á ekki heima þar. Ég er þó mjög oft á ferðinni á t.d Húsavík og þekki orðið býsna mikið af fólki þar í gegnum vinnuna mína, þátttöku í Tónasmiðjunni, störf mín í slökkviliðinu og björgunarsveitinni. Ég hef líka fullan skilning á því að íbúar Húsavíkur geri sér ekki grein fyrir hvað það er sem brennur mest á þeim sem búa á Raufarhöfn. Þeir hlutir lagast alveg pottþétt ekki ef megnið af stjórnsýslunni er öll á einum stað (Húsavík) og þau sem manna stjórnina búa þar líka. Þeir lagast með því að fá fólk af öllum svæðum Norðurþings til starfa í sveitastjórn, svo að þau sem eru frá Húsavík innan sveitarstjórnar geti útskýrt fyrir hinum hvar þeirra þarfir liggja og við gætum þá bent á það sem mætti betur fara á hinum svæðunum. Það sjáum við t.d ekki fyrir okkur að gerist með því að fækka kjörnum fulltrúum úr níu niður í sjö.
Við þurfum að klára þessa sameiningu sem var gerð fyrir 20 árum síðan, og fara að sýna að við erum saman í þessu.
Samtal-samstarf-samvinna er það sem þarf til þess.
Höfundur er Elvar Már Stefánsson, og skipar 5.sæti á X-Ó Óskalistanum í sveitarstjórnarkosningunum í Norðurþingi 2026

