Í dag eru 45 ár frá því að nýsmíðuð Kolbeinsey ÞH 10 sigldi inn í Húsavíkurhöfn, sunnudaginn 10. maí 1981. Komu skipsins var fagnað af miklum fjölda bæjarbúa og var dagurinn stór stund í atvinnusögu Húsavíkur.
Þorgrímur Aðalgeirsson minntist tímamótanna á Facebook-síðunni Húsavík fyrr og nú og birti þar fallegar myndir frá bryggjunni þegar Húsvíkingar fögnuðu þessu glæsilega fleyi í heimahöfn.
Hafþór Hreiðarsson gerir sögu Kolbeinseyjar góð skil á vefsíðu sinni Skipamyndir.com. Þar kemur fram að Kolbeinsey ÞH 10 hafi verið smíðuð fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri. Skipinu var gefið nafn og það sjósett 7. febrúar 1981, áður en það kom til heimahafnar á Húsavík 10. maí sama ár.
Kolbeinsey var 430 brúttórúmlestir að stærð og var gerð út frá Húsavík til haustsins 1997. Skipið var fyrst í eigu Höfða hf, síðar Íshafs hf, aftur Höfða hf. og að lokum Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf.
Haustið 1997 var skipið selt án kvóta til Bolungarvíkur og fékk þá nafnið Hrafnseyri ÍS 10. Síðar bar það meðal annars nöfnin Guðrún Hlín BA 122, Helterma og Kolbeinsey BA 123. Að lokum endaði skipið í Suður-Afríku, þar sem það fékk nafnið Laverne og heimahöfnina Cape Town.

